top of page

Afborganir hækkað gríðarlega

Writer: Pall Palsson
Pall Palsson
May 5, 2022
1 min read

Nýlega hækkaði Seðlabanki Íslands stýrivexti í 3,75% með það fyrir markmiði að tempra verðbólgu en hækkun húsnæðisverðs vegur hvað þyngst í hækkun á verðbólgu.

Flest erum við sammála að húsnæðisverð er að vaxa of hratt og erfitt fyrir ýmsa hópa að komast inná markaðinn.

‍

Frá því stýrivextir byrjuð að hækka aftur þá hafa afborganir lána hækkað töluvert eins og dæmin hér sýna.

‍

30m.kr. til 30ára með jöfnum greiðslum, vextir 3,3% (lægstu breytilegir vextir, des 2020-jún2021) var greiðslubyrði um 132.000,- á mánuði

30m lán til 30 ára með jöfnum greiðslum og vextir uppá 4,7% (breytilegir vextir í dag) er greiðslubyrði 156.000,- á mánuði

EF vextir hækka um 1% eða í 5,7% þá myndi 30m lán til 30ára með jöfnum greiðslum fara í 175.000,- á mánuði.

‍

sem stendur er Gildi lífeyrissjóður, Lífsverk og Brú vera með hagkvæmustu (óverðtr/breytilega ) vextina eða um 4.5% en SL með hagkvæmustu ( óverðtr/fastir ( vextir eða um 5,19%

‍




 
 
 

Comments


bottom of page