top of page
  • Writer's picturePall Palsson

46,7% aukning á sölu á milli ára

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga um fasteignir við sýslumannsembættin á höfuðborgarsvæðinu í september 2018 var 707. Heildarvelta nam 36 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning var 51 milljón króna. Viðskipti með eignir í fjölbýli námu 23,8 milljörðum, viðskipti með eignir í sérbýli 9,5 milljörðum og viðskipti með aðrar eignir 2,7 milljörðum króna.

Þegar september 2018 er borinn saman við ágúst 2018 fækkar kaupsamningum um 9,4% og velta minnkar um 4,9%. Í ágúst 2018 var 780 kaupsamningum þinglýst, velta nam 37,9 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning 48,6 milljónir króna.

Þegar september 2018 er borinn saman við september 2017 fjölgar kaupsamningum um 46,7% og velta eykst um 55,2%. Í september 2017 var 482 kaupsamningum þinglýst, velta nam 23,2 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning 48,2 milljónir króna.

bottom of page